Viðbrögð stjórnenda við tilkynningu um EKKO á vinnustað

Viðbrögð stjórnenda við tilkynningu um EKKO á vinnustað

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Fri Mar 12 2027 13:00

Hvernig á stjórnandi að bregðast við tilkynningu um EKKO (einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni eða ofbeldi) á vinnustað?

Hvernig á stjórnandi að bregðast við tilkynningu um EKKO: einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni eða ofbeldi á vinnustað?

Á námskeiðinu er farið yfir þau lög og reglur sem gilda um félagslega vinnuumhverfið. Fjallað er um þá verkferla sem eiga að vera til staðar á vinnustað og hvernig stjórnendur eiga að bera sig að þegar upp koma samskiptavandamál eða tilkynnt er um atvik sem talist geta einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni eða ofbeldi.

Stjórnendur fá innsýn í dómaframkvæmd og þannig skýra sýn á þann ávinning sem skapast af því að hafa góða verkferla á vinnustaðnum og nauðsyn þess að stjórnendur þekki hvernig bregðast skal við þegar tilkynnt er um einelti, ofbeldi eða áreitni á vinnustaðnum.

Námskeiðið er ætlað stjórnendum, millistjórnendum, starfsfólki sem sinnir mannauðsmálum eða er með mannaforráð. Námskeiðið er einnig mjög gagnlegt fyrir trúnaðarmenn og öryggistrúnaðarmenn vinnustaða.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Lögbundnar skyldur atvinnurekenda í tengslum við félagslega vinnuumhverfið.
  • Lágmarkskröfur sem gerðar eru í lögum til viðbragðsáætlana vinnustaðar.
  • Hvernig á stjórnandi að bregðast við tilkynningum um einelti, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni eða ofbeldi?
  • Á stjórnandi að gera breytingar á starfsumhverfinu meðan mál er til skoðunar?
  • Hvenær getur atvinnurekandi orðið skaðabótaskyldur vegna eineltis- eða áreitnismáls á vinnustaðnum?
  • Hver á rétt á aðgangi að niðurstöðu í EKKO-máli?
  • Viðbrögð stjórnenda þegar niðurstaða liggur fyrir í EKKO máli.

Ávinningur þinn:

  • Betri stjórnandi.
  • Betra vinnuumhverfi fyrir starfsfólk.
  • Rétt viðbrögð geta takmarkað orðsporsáhættu.
  • Rétt viðbrögð geta takmarkað hættu á skaðabótaskyldu fyrirtækis.