Vika einmanaleikans – Nýr spjallbekkur og kaffispjall í Grundarfirði

Vika einmanaleikans – Nýr spjallbekkur og kaffispjall í Grundarfirði

Sögumiðstöðin, Grundargata 35, 350 Grundarfjörður Directions

Tue Oct 06 2026 18:00

Í tilefni af Viku einmanaleikans mun Kvenfélagið Gleym mér ei í Grundarfirði afhenda spjallbekk sem staðsettur verður miðsvæðis í bænum, í lautinni við heilsugæsluna.

Birkir Jón Jónsson, bæjarstjóri Grundarfjarðar, tekur á móti spjallbekknum sem var smíðaður og málaður af vistmönnum á Kvíabryggju.

Að afhendingu lokinni verður boðið upp á kaffi og notalegt spjall í Sögumiðstöðinni þar sem allir eru hjartanlega velkomnir.