Vitringarnir 3 - 2026 í Hofi
Hof Menningarhús, Strandgata 12, 600 Akureyri Directions
Sat Dec 12 2026 19:00
Vinirnir og gullbarkarnir Eyþór Ingi, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen mæta í Hof á aðventunni.
Og það verður seint sagt að þeir séu að koma á ókunnar slóðir.
Eyþór er Dalvíkingur, Friðrik Akureyskur-Dalvíkingingur og Jógvan er Færeyingur sem hefur lengi verið undir sterkum grun um að vera Norðlendingur í röngum þjóðbúningi.
Þeir eru ólíkir og alls ekki alltaf sammála. Enginn veit með fullri vissu hver þeirra ræður – en fyrir norðan eru þeir að minnsta kosti tveir á heimavelli.
Þegar þeir þrír standa saman á sviði gerast einhverjir töfrar sem erfitt er að útskýra.
Saman lofa þeir gríni, grúvi og gæsahúði!
(Jógvan getur enn ekki fallbeygt orðið „gæsahúð“. Norðurland hefur engu breytt þar um.)
Þeir verða þó alls ekki einir á sviðinu. Ingvar Alfreðsson stjórnar hljómsveit hússins og svo gætu einhverjir gestir bankað á dyr. Það er aðventan, þetta er Akureyri og maður sendir fólk ekki aftur út í kuldann.
Hver veit hverjir rata inn?
Sem fyrr er sýningin ekki við hæfi miðaldra kvenna. Norðlenskar konur eru þar engin undantekning.
Skráðu þig á póstlista Vitringanna á www.vitringarnir3.is.
Fyrir hópabókanir, 21 manns eða fleiri, sendið fyrirspurn á info@betlehem.is.
Forsala fyrir póstlistann hefst 28. ágúst kl. 11:00.
Almenn miðasala hefst 1. september kl. 11:00.
www.vitringarnir3.is