Vitringarnir 3 - 2026 í Hörpu

Vitringarnir 3 - 2026 í Hörpu

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions

Sun 06.12.2026 17:00

Vinirnir og gullbarkarnir Eyþór Ingi, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen setja allt á hliðina í Hörpu á aðventunni. Þeir eru ólíkir og alls ekki alltaf sammála. Enginn veit með fullri vissu hver þeirra ræður. En þegar þeir þrír standa saman á sviði gerast einhverjir töfrar sem erfitt er að útskýra.

Saman lofa þeir gríni, grúvi og gæsahúði!

(Jógvan getur ekki fallbeygt orðið „gæsahúð“.)

Þeir verða þó alls ekki einir á sviðinu. Ingvar Alfreðsson stjórnar hljómsveit hússins og svo gætu einhverjir gestir bankað á dyr – eins og gerist gjarnan á aðventunni. Hver veit?

Sem fyrr er sýningin ekki við hæfi miðaldra kvenna.

Skráðu þig á póstlista Vitringanna á https://www.vitringarnir3.is/

Fyrir hópabókanir, 21 manns eða fleiri, sendið fyrirspurn á info@betlehem.is.

Almenn miðasala hefst 1. september kl. 11:00.

www.vitringarnir3.is

Performers