Vökudagar 2026

Vökudagar 2026

Báran, Bárugata 21, 300 Akranes Directions

Thu Oct 22 2026 18:00

Vökudagar hafa verið haldnir á Akranesi frá árinu 2002 og eru í dag ein stærsta og fjölbreyttasta samfélags- og menningarhátíð bæjarins. Á hverju hausti sameinast bæjarbúar, listafólk, fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir og skólar um að skapa einstaka hátíð þar sem listir, menning og mannlíf fá að njóta sín.

Dagana 22. október til 1. nóvember fyllist Akranes af líflegum menningarviðburðum fyrir fólk á öllum aldri.

Við kynnum nýja heimasíðu! www.vokudagar.is þar finnið þið alla viðburði hátíðarinnar, getið búið til ykkar eigið dagatal, deilt því með vinum og ratað milli staða á gagnvirku götukorti!

Vökudagar eru ekki aðeins vettvangur fyrir upplifun og skemmtun heldur einnig mikilvægt tækifæri fyrir listafólk, skapandi einstaklinga og samfélagið allt til að koma saman, deila hugmyndum og skapa ný tengsl. Hátíðin hefur vaxið hratt undanfarin ár og laðar nú að sér gesti víðs vegar að af landinu.

Það sem gerir Vökudaga einstaka er að hátíðin verður til í krafti samfélagsins sjálfs. Hundruð einstaklinga leggja sitt af mörkum til að skapa fjölbreytta og spennandi dagskrá sem endurspeglar þann kraft og þá sköpunargleði sem býr á Akranesi.

Við hvetjum öll til að leyfa sér að prófa eitthvað nýtt, mæta á viðburði sem vekja forvitni og njóta þess að taka þátt í þessari einstöku hausthátíð.