xNei mætir Jágúst - Kappræður á Stúdentakjallaranum um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst 🗳️
Student Cellar, Sæmundargata 4, 102 Reykjavík Directions
Tue 25.08.2026 20:00
Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst um að hefja viðræður við ESB á ný, og spennan magnast...⚡️
Því efnir Stúdentaráð Háskóla Íslands til kappræðna á Stúdentakjallaranum á milli ungra já- og nei-sinna þar sem fært verður rök fyrir báðum afstöðum og fjallað verður um hin ýmsu málefni varðandi viðræðurnar sem brenna á ungu fólki👏🏻
Þátttakendur fyrir já-ið verða:
Jóhannes Óli Sveinsson, formaður Ungs jafnaðarfólks
Þórhildur Davíðsdóttir, varaformaður ungra Evrópusinna
Þátttakendur fyrir nei-ið verða:
Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna
Magnea Gná Jóhannsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar í Reykjavík
Dagskrá:
1. Katla Ólafsdóttir, forseti SHÍ, setur kappræðurnar með opnunarávarpi.
2. Freyja Þórisdóttir, spyrill og blaðamennskunemandi, kynnir viðmælendur.
3. Hver viðmælandi fær 1 mínútur til að kynna sig og afstöðu sína í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
4. Spyrill ber upp undirbúnar spurningar og fær hver hlið 2 mínútur til að svara. Hver hlið fær einnig að koma með andsvar í eina mínútu.
5. Hver hlið undirbýr eina spurningu fyrir hina hliðina. Spurningunni er svarað með 1 mín svari. Engin andsvör.
6. Opnað verður á spurningar úr sal.
Við hvetjum alla sem vilja kynna sér málin betur til að mæta á stúdentakjallarann okkar góða, jafnvel með kaldan í hendi, og fylgjast með þessari veislu 🍻
Performers
-
Stúdentaráð Háskóla Íslands - SHÍEverything that matters for students