Yin Yoga framhaldsnám
Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions
Sat Feb 13 2027 09:00
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem þegar hafa tekið grunnnám í Yin Yoga og vilja læra meira, rifja upp og dýpka þekkinguna.
Námskeiðið fer fram í fjarnámi. Við hittumst á Zoom 13.febrúar og 6.mars og förum yfir þetta fræðilega. Á milli lotanna fá þátttakendur aðgang að upptökum til að spreyta sig á heima – bæði heila Yin Yoga tíma og upptökur með meridian æfingum. Skila þarf inn laufléttu heimaprófi eftir hverja lotu til að geta útskrifast.
Á námskeiðinu verður m.a. farið yfir:
- Orkurásirnar (e. Meridians), fræðileg yfirferð og orkulosandi æfingar
- Anatómía hryggsúlu, axla og mjaðma, fræðileg yfirferð og yin tímar
- Bandvefurinn og orkulíkamarnir (e. Koshas), fræðileg yfirferð og yin tímar
- Yin Yoga og frumefnin 5, fræðileg yfirferð og æfingar
- Kennslutækni og ýmis tips hvernig við búum til þematengda tíma
Fyrirspurnir um námið má senda á greynis@dohomeyoga.com
Kennari er Guðrún Reynis. Tilboðsverð kr. 59.900.