Yoga Nidra kennaranám

Yoga Nidra kennaranám

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Sat Jan 16 2027 09:00

Karma Jógastúdíó kynnir Yoga Nidra kennaranám með örlítið breyttu sniði. Námið er 15 klukkustundir og í stað þess að fara fram yfir heila helgi fer það nú fram í þremur lotum. Við hittumst 3 laugardaga á Zoom og erum ca 4-5 klukkustundir í senn.

Dagsetningarnar eru þessar:

Lota 1: 16.janúar 2027 kl. 9-13/14

Lota 2: 6.febrúar 2027 kl. 9-13/14

Lota 3: 27.febrúar 2027 kl. 9-13/14

Innifalið er í verði eru námsglærur. Að auki fá þátttakendur 3 upptökur af Yoga Nidra tímum á milli lota (samtals 6 upptökur) til að iðka heima á milli lota. Einnig fá þátttakendur 9 handrit af Yoga Nidra tímum til að spreyta sig í kennslu heima á milli lota. Eftir hverja lotu þurfa þátttakendur að senda inn svokallaðar hugleiðingar um lotu, svara nokkrum laufléttum spurningum. Skírteini er ekki afhent fyrr en allar hugleiðingar hafa verið sendar inn.

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur leyfi til að leiða sína eigin Yoga Nidra tíma. Ekki þarf að vera jógakennari til að koma á námskeiðið en vakin er athygli á því að ekki má kalla sig jógakennara nema hafa lokið a.m.k. 200 tíma grunnnámi í jóga.

Skráning fer fram á heimasíðu Karma. Áhugasamir geta sent póst á greynis@dohomeyoga.com ef þeir eru ekki tilbúnir að greiða strax og þá fara þeir á lista og svo þarf að greiða fyrir námskeiðið í febrúar. Ekki er hægt að skipta greiðslum og ekki er hægt að fá endurgreitt þegar námsefni hefur verið afhent eða námskeið er byrjað. Verð fyrir námskeiðið er 69.900. Allt námsefni er á íslensku.

Frekari upplýsingar veitir Guðrún Reynisdóttir á greynis@dohomeyoga.com