The Liberation Orchestra of Iceland (IS)

The Liberation Orchestra of Iceland (IS)

jazz

About

Um viðburðinn Athugið! Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar í Hörpu en hann veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Hörpu. Frelsissveitin var stofnuð árið 2010 af Hauki Gröndal og hefur starfað með hléum að ýmsum verkefnum. Hljómsveitin kom síðast fram á Jazzhátíð Reykjavíkur árið 2020 og flutti þá verkið “Four elements” eftir Hauk Gröndal. Upptaka af tónleikunum var sýnd á RÚV í mars 2022 en verkið og Frelsissveitin hlutu tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununm 2021. “Tónlistarhópur ársins” í jazz- og blúsflokki og “Tónverk ársins” í jazz- og blúsflokki. Að þessu sinni leikur finnski píanistinn Kari Ikonen með sveitinni en hann er einn þekktasti jazz- og spunapíanisti Finnlands enda framsækinn, ævintýragjarn virtúós. Á efnisskránni verða ný verk og útsetningar eftir Hauk Gröndal. M.a. verður frumflutt ný svíta sem ber titilinn “Aether”. Kari Ikonen : píanó Haukur Gröndal : saxófónar Snorri Sigurðarson : trompet Samúel J. Samúelsson : básúna Guðmundur Pétursson : gítar Pétur Grétarsson : slagverk Birgir Steinn Theódórsson : bassi Magnús Trygvason Elíassen : trommur Aðrir tónleikar á sama kvöldi: Marína Ósk kvartett (IS/SE) Jakob Bro / Óskar Guðjónsson / Skúli Sverrisson (DK/IS) Guitar Islancio og Unnur Birna

Upcoming events

  • Jazzhátíð Reykjavíkur í Hörpu
    Jazzhátíð Reykjavíkur í Hörpu
    Norðurljós in Harpa
    Fri 28.08.2026 19:00
    View event
  • Mörk hins skrifaða og hins spunna
    Mörk hins skrifaða og hins spunna
    Salurinn
    Wed 20.01.2027 20:00
    View event