Tumi Torfason

Tumi Torfason

jazz

About

Tumi Árnason & hljómsveit (IS) Harpa, Norðurljós Laugardagurinn 31. ágúst 19:00 Kvöldpassi Ég vinn nú að umfangsmiklu verki fyrir stóra hljómsveit sem lokaverkefni í tónsmíðanámi í Listaháskóla Íslands, en ég sé fyrir mér að það sé stökkpallur í að þróa verkefnið enn lengra í formi tónleika á tónlistarhátíð og/eða upptakna. Verkið er á mörkum jazz, spuna og nútímatónlistar og verður nokkurs konar frjálslynd spuna furðusveit. Í verkinu er ég að vinna með tvær rytmasveitir, annars vegar rafbassa og trommur og hins vegar kontrabassa og trommur. Ásamt þessum sveitum spilar svo fríður flokkur hljóðfæraleikara, mestmegnis blásara. Væntanleg hljóðfæraskipan er eftirfarandi, með fyrirvara um breytingar: Flautur: Björg Brjánsdóttir Bassa- og kontrabassaklarinett, blokkflautur: John McCowen Alt saxófónn: Sölvi Kolbeinsson Tenór saxófónn: Tumi Árnason Tenór og barítón saxófónar: Björgvin Ragnar Hjálmarsson Trompet: Eiríkur Orri Ólafsson & Tumi Torfason Básúna: Ingi Garðar Erlendsson Fiðla: Hjalti Nordal Kontrabassi: Birgir Steinn Theódórsson Rafbassi: Ingibjörg Turchi Trommur og slagverk: Magnús Trygvason Eliassen & Matthias Hemstock Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar í Hörpu en hann veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Allir tónleikar fara fram í Norðurljósasal á 2. hæð. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Hörpu. Dagskrá Jazzhátíðar í Hörpu: Laugardagur 31. ágúst - kvöldpassi 8.490 kr. 19:00 - Tumi Árnason og hljómsveit (IS) 20:00 Arnold Ludvig Quintet (IS/FO) 21:00 Sigmar Matthiasson - Útgáfutónleikar (IS) 22:00 Shuteen Erdenebataar Quartet (DE)

Links:

Upcoming events

  • RGS kvintett
    RGS kvintett
    Jomfruin
    Sat 29.08.2026 15:00
    View event
  • Sumarjazz - RSG kvintett á Jazzhátíð
    Sumarjazz - RSG kvintett á Jazzhátíð
    Jomfruin
    Sat 29.08.2026 15:00
    View event
  • Jazzhátíð Reykjavíkur í Iðnó 30. ágúst
    Jazzhátíð Reykjavíkur í Iðnó 30. ágúst
    Iðnó
    Sun 30.08.2026 19:00
    View event