Gamli Garðskagavitinn

, 250 Garðar

About

Verkfræðingar dönsku vitamálastofnunarinnar hönnuðu vitann og var hann byggður árið 1897. Hann var friðaður skv. lögum um húsafriðun árið 2003. „Gamli Garðskagavitinn er ferstrendur kónískur turn, 11,4 m hár, 3,1 m breiður að neðan en 2,8 m efst uppi undir þakskeggi. Hæð vitans með ljóshúsi var 15 m. Þakskeggið er skásett neðanvert og þynnist út á við að lóðréttri brún yst. Upp af því er steinsteypt handrið með frambrún efst. Á turninum var danskt ljóshús úr steypujárni, en það var fjarlægt árið 1944. Í vitanum eru tvö steinsteypt milligólf og tréstigar milli hæða.“

Upcoming events

  • Ástarsöguganga
    Ástarsöguganga
    Sat 29.08.2026 10:30
    View event