Háskólinn á Akureyri
Norðurslóð 2, 600 Akureyri
About
Háskólinn á Akureyri (HA) var stofnaður árið 1987 og fyrsti rektorinn, Haraldur Bessason var ráðinn um sumarið það ár. Fyrsta starfsárið var boðið upp á nám í tveimur deildum, heilbrigðisdeild og rekstrardeild. Kennslan fór fram í tveimur stofum í Íþróttahöllinni og tvær skrifstofur starfsmanna voru í Þingvallastræti 23. Fastráðnir starfsmenn voru fjórir og nemendur voru 31.
Frá upphafi hefur vöxtur HA verið hraður. Námsframboð hefur aukist jafnt og þétt, nemendum og starfsfólki hefur fjölgað, ýmsir samstarfsaðilar hafa komið til og byggingar hafa risið. Nú er boðið upp á grunnnám í eftirtöldum greinum: félagsvísindi, fjölmiðlafræði, hjúkrunarfræði, iðjuþjálfun, kennarafræði (leik- og grunnskóla), líftækni, lögfræði, lögreglufræði, nútímafræði, sálfræði, sjávarútvegsfræði og viðskiptafræði. Þá er einnig boðið upp á framhaldsnám á heilbrigðisvísindasviði, í félagsvísindum, viðskiptafræði og auðlindafræði.
Upcoming events
-
SÁLFRÆÐISPJALLIÐ: Hvernig móta fyrstu tengslin það hvernig við elskum?Thu Nov 19 2026 16:00View event -
-
-
-
-
-
-
-
Hvaða þýðingu hefur fullveldisdagurinn í hugum Íslendinga og hvernig umgöngumst við hugtakið fullveldi?Mon Nov 30 2026 14:00View event -
-
-