Kirkjubæjarklaustur
, 880 Kirkjubæjarklaustur
About
„Staðurinn hét Kirkjubær á Síðu fyrr á tíð og var þar löngum stórbýli. Þar hefur nú myndast kauptún, eina þéttbýlið í hreppnum með um 120 íbúa. Kirkjubæjarklaustur, í daglegu tali nefnt Klaustur, er miðsvæðis í hreppnum og þaðan liggja leiðir til allra átta. (...) Kirkjubæjarklaustur á sér langa og merka sögu. Talið er að fyrir landnám norrænna víkinga hafi Papar haft búsetu á Kirkjubæjarklaustri, segir sagan að þar hafi ávallt búið kristnir menn en heiðnum mönnum hafi ekki verið heimil búseta. Þar bjó landnámsmaðurinn Ketill hinn fíflski.“ Í Kirkjubæ var stofnað nunnuklaustur af Benediktsreglu árið 1186 og hélst klausturhald nær óslitið fram til siðaskipta árið 1554.