Öskjuhlíð
Varmahlíð 1, 105 Reykjavík
About
„Öskjuhlíð er einstakt útivistarsvæði í nágrenni Miðborgarinnar með fjölbreyttri náttúru og áhugaverðum söguminjum. Öskjuhlíðin er einstök og sennilega það opna svæði í Reykjavík sem er mest áberandi og flestir þekkja. Hún er 61 metra há, stórgrýtt hæð sem skagar yfir sitt nánasta umhverfi þ.m.t. miðbæ Reykjavíkur.“ Þar er ein þéttasta skógrækt í Reykjavík, sem hófst þar um miðja 20. öld og er þar nú nær samfelldur skógur þar sem birki, bergfura, sitkagreni og alaskaösp eru algengustu trjátegundir. Fuglalíf er auðugt og oft má sjá kanínur í skóginum. Þar eru einnig ýmsar söguminjar, s.s. minjar selja og mannvistarminjum frá stríðsárunum.