Albína Hulda Thordarson
About
Albína Thordarson er í einstæðri aðstöðu til að lýsa lífi og starfi föður síns og var í hópi fáeinna íslenskra kvenna sem fyrstar lærðu arkitektúr. Hún lauk prófi frá Kaupmannahöfn árið 1966 og hefur rekið eigin stofu síðan 1977. Albína var fyrsti formaður Samark árið 1998 og var einnig formaður Arkitektafélags Íslands 2005 – 2007. Albína varð heiðursfélagi í Arkitektafélagi Íslands 2016 og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2025 fyrir framlag sitt til byggingarlistar.