Sigvaldi Thordarson arkitekt - ævi og helstu verk
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Wed Nov 11 2026 19:30
Nafn Sigvalda Thordarson heyrist víða í íslensku samfélagi - en hver er maðurinn á bak við Sigvaldahúsin?
Á þessu námskeiði fléttast saman einstök innsýn í lítt kannaðan þátt í þróun byggingarlistar á Íslandi á 20. öld og saga tveggja kynslóða arkitekta, feðginanna Sigvalda og Albínu Thordarson.
Sigvaldi Thordarson (1911–1964) er einn merkasti listamaður sinnar kynslóðar og sá arkitekt eftirstríðsáranna sem hvað kunnastur er fyrir verk sín. Sigvaldi átti veigamikinn þátt í framþróun húsagerðar hér á landi á 5. og 6. áratug 20. aldar og innleiddi mikilvægar nýjungar í mótun byggðar og hönnun íbúðarhúsnæðis. Verk hans bera skýr höfundareinkenni listrænnar hönnunar og áherslu á hagkvæmni. Einnig í notkun mismunandi lita og efna á afmarkaða fleti til að árétta tengsl og samhengi ytra forms og innri gerðar. Íbúðir í Sigvaldahúsum þóttu framúrskarandi á sínum tíma og njóta enn mikillar virðingar, enda er nafn arkitektsins er oft sérstaklega tilgreint í fasteignaauglýsingum.
Sigvaldi var alla tíð eindreginn vinstrimaður og friðarsinni. Stjórnmálaskoðanir hans höfðu áhrif á þau verkefni sem honum buðust og byggingarlist hans verður ekki skilin án vitundar um samfélagslega hugsjón hans. Sigvalda Thordarson má með réttu kalla „arkitekt íslenskrar alþýðu“, enda þótt hann hafi í reynd verið arkitekt allra stétta.
Rauður þráður í ævistarfi Sigvalda var hönnun hagkvæmra og vandaðra íbúða fyrir alla hópa samfélagsins. Annar snar þáttur var hönnun orkumannvirkja, en þau eru mikilvægur vitnisburður um þróun íslensks samfélags og byggingarlistar á 20. öld.
Námskeiðið er haldið í tilefni af útkomu bókar um Sigvalda í haust þar sem dóttir hans, arkitektinn Albína Thordarson, rekur sögu föður síns og verka hans eins og hún sjálf upplifði hana. Bókin er samvinnuverkefni Albínu og Péturs H. Ármannssonar arkitekts sem ritar aðfaraorð og kafla um náms- og mótunarár Sigvalda. Þátttakendum býðst að kaupa bókina um Sigvalda Thordarson á tilboðsverði hjá kennurum námskeiðsins. Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á byggingarlist, hönnun, mannvirkjagerð, þróun íbúðarhúsnæðis og íslenskri samfélagssögu á 20. öld.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Mótunarár Sigvalda Thordarson og námsferil hans við Listaháskólann í Kaupmannahöfn fyrir og eftir seinni heimsstyrjöld.
- Kunnustu verk hans frá stofnun eigin teiknistofu árið 1952 og þar til hann lést langt fyrir aldur fram, árið 1964.
- Sérkenni hönnunar hans, efnisnotkun og höfundareinkenni.
- Tengsl byggingarlistar hans við samtíma hans og samfélagslegar hugmyndir.
- Framlag hans til hönnunar mannvirkja fyrir orkuiðnaðinn.
Ávinningur þinn:
- Þú kynnist ævi og starfi eins áhrifamesta arkitekts Íslands á 20. öld.
- Þú færð innsýn í þróun íslenskrar byggingarlistar á eftirstríðsárunum.
- Aukinn skilningur á sögu íslensks íbúðarhúsnæðis og skipulagsmála.
- Þú kynnist helstu einkennum verka Sigvalda Thordarsonar.
- Aukinn skilningur á samspili byggingarlistar, samfélagsþróunar og stjórnmálahugmynda á Íslandi á 20. öld.