Elín Ósk Helgadóttir

Elín Ósk Helgadóttir

About

Elín Ósk Helgadóttir er lögfræðingur frá HÍ og með LL.M. í alþjóða- og samanburðarlögfræði. Hún starfar sem deildarstjóri nefndadeildar Alþingis en meðal verkefna deildarinnar er að stuðla að vandaðri lagasetningu og tryggja þingmönnum og þingnefndum faglega þjónustu og ráðgjöf. Í fastanefndum fer fram efnisleg vinnsla lagafrumvarpa og þingsályktana við þinglega meðferð þeirra.

Elín Ósk er jafnframt í fastri stöðu við Lagadeild HR þar sem hún kennir m.a. stjórnskipunarrétt og stjórnsýslurétt.

Elín Ósk hefur á starfsferli sínum komið að ýmsum flóknum álitaefnum sem upp hafa komið á vettvangi lagasetningar, sinnt og þróað gæðastarf bæði innan Stjórnarráðs Íslands og skrifstofu Alþingis hvað varðar efnislega yfirferð lagafrumvarpa og breytingartillagna og haft aðkomu að málshöfðun vegna lagasetningar.

Upcoming events

  • Vönduð löggjöf - undirbúningur, gæði og eftirlit
    Vönduð löggjöf - undirbúningur, gæði og eftirlit
    Endurmenntun HÍ
    Thu Jan 28 2027 08:30
    View event