Vönduð löggjöf - undirbúningur, gæði og eftirlit
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Thu Jan 28 2027 08:30
Á námskeiðinu er fjallað um gerð lagafrumvarpa, undirbúning þeirra, hvernig gæði eru tryggð, þinglega meðferð mála og eftirlitshlutverk umboðsmanns Alþingis.
Markmið námskeiðsins er að veita innsýn í gerð lagafrumvarpa og annarra stjórnvaldsfyrirmæla, eins og reglugerða, eins og við getur átt. Farið er yfir það hvernig löggjöf er undirbúin í ráðuneytum eða á þeirra vegum í samræmi við íslenska lagahefð og alþjóðlegar skuldbindingar. Einnig er fjallað um hvernig reynt er að tryggja gæði lagasetningar hjá stjórnvöldum, m.a. með áformum, samráði og mati á áhrifum, þar á meðal á ríkissjóð, sveitarfélög og jafnrétti. Fjallað er um hlutverk Alþingis, meðferð mála þar og eftirlitshlutverk umboðsmanns Alþingis og aðkomu dómstóla.
Fyrir alla sem koma að því að semja lagafrumvörp og reglugerðir hjá Stjórnarráðinu, stofnunum og í atvinnulífinu eða þurfa að senda inn umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda, til nefnda Alþingis og mæta á þingnefndafundi og sinna hagsmunagæslu. Lögfræðimenntun er ekki skilyrði.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Hvað eru góð lög?
- Frumkvæði að lagasetningu - þingmálaskrá ríkisstjórnar.
- Ferlið við að semja lagafrumvörp, form og efni, yfirlestur og gæðarýni.
- Hlutverk Alþingis, eftirlit umboðsmanns Alþingis og aðkoma dómstóla - meinbugi á lögum.
Ávinningur þinn:
- Færni til að semja lagafrumvörp og reglugerðir samkvæmt íslenskri lagahefð.
- Aukin yfirsýn yfir lög, reglur, samþykkt ríkisstjórnar um undirbúning og frágang lagafrumvarpa og þingsályktunartillagna, samráðsgátt stjórnvalda, hvernig mat á áhrifum fer fram o.fl.
- Aukin yfirsýn yfir ferli, leiðbeiningar og sniðmát – frá hugmynd eða ákvörðun í stjórnarsáttmála þar til lög eru samþykkt á Alþingi og birt.
- Praktísk nálgun sem nýtist í starfi við gerð lagafrumvarpa með það að markmiði að auka gæði lagasetningar – eftirlit umboðsmanns Alþingis.
- Þekking á hlutverki Alþingis við þinglega meðferð.
- Þekking til að greina annmarka eða meinbugi á lögum ásamt eftirliti og afleiðingum.