Hafdís Helga Ólafsdóttir
About
Hafdís Ólafsdóttir er lögfræðingur frá HÍ og með LL.M. í Evrópurétti. Hún starfar sem skrifstofustjóri á skrifstofu löggjafarmála í dómsmálaráðuneyti þar sem öll lagafrumvörp og þingsályktunartillögur ríkisstjórnar eru rýnd og lesin áður en þau eru lögð fram í ríkisstjórn og síðar á Alþingi.
Hafdís var stundakennari við Lagadeild HR haustið 2025 og hafði umsjón með námskeiði um lagagerð. Þá var Hafdís aðjúnkt við Lagadeild HÍ 2005-2020 og hafði umsjón og sinnti kennslu, m.a. á námskeiðum um lagagerð. Hún hefur áður starfað m.a. sem skrifstofustjóri og frumvarpshöfundur í fjármála- og efnahagsráðuneyti og forsætisráðuneyti og forstöðumaður nefndasviðs Alþingis.