Hátíðaropnun Seiglu 2026
Harpa | Hörpuhorn, Hörpuhorn, 101 Reykjavík Directions
Fri 07.08.2026 17:00
Verið velkomin á hátíðaropnun Seiglu í Hörpuhorni, þar sem við fögnum upphafi sjötta ársins sem við höldum upp á Seiglu!
Á barnum verður hægt að kaupa sér drykk og njóta góðrar samveru með flytjendum, skipuleggjendum og gestum hátíðarinnar áður en fyrstu tónleikar helgarinnar hefjast. Komdu og taktu þátt í að setja tóninn fyrir helgi fulla af tónlist, upplifunum og góðum stundum. Dagskrá hátíðarinnar verður kynnt og nokkrir flytjendur Seiglu stíga á svið og gefa smjörþefinn af því sem koma skal.
–
Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.
Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.