Á slóðum Verdis og Falstaff

Á slóðum Verdis og Falstaff

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Mon Feb 08 2027 20:00

Skyggnstu á bak við tjöld uppsetningar á gamanóperunni Falstaff eftir ítalska meistarann Giuseppi Verdi.

Í samstarfi við Óperuna og Þjóðleikhúsið

Fyrsta stóra uppfærsla nýrrar Óperu á Íslandi verður gamanóperan Falstaff eftir Giuseppe Verdi og er það í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið er byggt á persónum úr leikritum eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaffs til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé af eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd. Falstaff verður flutt á íslensku í nýrri þýðingu og mun Sinfóníuhljómsveit Íslands sjá um hljóðfæraleik.

Í tilefni sýningarinnar er haldið námskeið þar sem þátttakendur fá einstakt tækifæri til að kynna sér sögu ítalska tónskáldsins Giuseppes Verdi og síðustu óperu hans, Falstaff. Verdi er frægur fyrir að hafa túlkað allar mannlegar tilfinningar með tónum á sama hátt og Shakespeare miðlaði hinu sama með orðum. Á námskeiðinu verður fjallað um snilli þessa tveggja máttugu meistara og skoðuð hin mikilfenglega persóna sem þeim þótti tilefni til að setja í sögu: Sör John Falstaff. Jafnframt fá þátttakendur innsýn í þann undraheim sem býr að baki svo viðamikillar óperuuppsetningu en auk fyrirlestrakvölda mun námskeiðshópurinn fylgjast með æfingu á óperunni, hitta söngvara og listræna stjórnendur og upplifa svo fyrst allra þessa uppfærslu á aðalæfingu í Eldborg.

Miði á aðalæfingu er innifalinn í námskeiðsgjaldi.

Dagskrá námskeiðs:

  • Mán. 8. feb. kl. 20:00 – 22:00: Magnús Lyngdal fjallar um sögu og samhengi ítalska tónskáldsins Giuseppes Verdi (1813 – 1901) en 19. öldin er jafnan nefnd „gullöld óperunnar“ (fyrirlestur hjá Endurmenntun, Dunhaga 7).
  • Mán. 15. feb. kl. 20:00 – 22:00: Magnús Lyngdal fjallar sérstaklega um síðustu óperu Verdis, Falstaff, þ.m.t. söguþráð og hlutverkaskipan og Brynhildur Guðjónsdóttir fjallar um Falstaff - persónuna í verkum Shakespeares og persónuna í meðförum Boito og Verdis. Hún mun auk þess veita innsýn inn listrænt teymi óperunnar, skoða þekkt þemu Verdis og notkun íslenskunnar í uppfærslunni (fyrirlestur hjá Endurmenntun, Dunhaga 7).
  • Fim. 18. feb. kl. 18:15 – 20:30: Heimsókn á æfingu í Hörpu og spjall við söngvara og listrænt teymi sýningarinnar.
  • Fim. 4. mars kl. 14:00 – 17:00: Aðalæfing í Eldborgarsal Hörpu.

Nánari upplýsingar um leiksýninguna er að finna á vef Þjóðleikhússins.

Efni og ávinningur

Giuseppe Verdi er í hópi frægustu tónskálda veraldar. Hann átti sér merka sögu en verk hans mótuðust framan af mjög af þeirri gerjun sem átti sér stað í óperuheiminum á fyrri hluta 19. aldar.

Á námskeiðinu verður leitast við að svara eftirfarandi spurningum:

  • Hvað einkennir 19. öldina í óperusögunni?
  • Úr hvaða jarðvegi spruttu verk Verdis?
  • Hvað einkenndi tímabilin þrjú sem verkum Verdis er jafnan skipt í?
  • Hver er saga og tilurð óperunnar Falstaff?
  • Hvernig birtist titilpersónan upphaflega hjá Shakespeare og svo aftur hjá Verdi og textahöfundi hans, Arrigo Boito.

Ávinningur þinn:

  • Þú eykur þekkingu þína á tónlistarsögu og þá sérstaklega Giuseppe Verdi.
  • Þú færð að kynnast uppsetningu á óperu frá fyrstu hendi.
  • Aukið menningarlæsi.

Aðrar upplýsingar

Námskeiðið er fyrst og fremst hugsað sem skemmtileg og aðgengileg yfirferð yfir sögu Verdis með áherslu á síðustu óperu hans, Falstaff, og veitir um leið tækifæri til þess að skyggnast á bak við óperuuppfærslu. Fyrir þau sem vilja dýpka þekkinguna er bent á aðgengilegar bækur:

  • Magnús Lyngdal Magnússon: „Klassísk tónlist – Á ferðalagi um tónlistarsöguna“. Vaka-Helgafell. Reykjavík 2026.
  • Magnús Lyngdal Magnússon: „Ópera – Á ferðalagi um sögu listformsins“. Auðarstræti. Reykjavík 2026.