Að finna rödd ljóðsins

Að finna rödd ljóðsins

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Thu Feb 04 2027 19:30

Hvað er það við þýðingu ljóða, sem gervigreindin virðist ekki ráða við?

Í heimi gervigreindar er þýðingarlistin eitt af þeim sviðum sem hætta er á að glatist í hendur tölvutækninnar. En hvað er það við ljóðlistina — í þýðingu — sem gerir að verkum að þeirri list virðist tækninni, að minnsta kosti enn sem komið er, um megn að sinna?

Á námskeiðinu verður stuðst við greinar og bókakafla úr heimi vestrænnar þýðingafræði og hún tengd þýðingasögu 20. aldar, með sérstakri áherslu á ljóðaþýðingar. Lesnar verða íslenskar ljóðaþýðingar frá því um 1950 og fram til okkar daga. Þá verður hluti námskeiðsins í ritsmiðjuformi, þar sem þátttakendum gefst færi á að kynna og ræða eigin þýðingar í vinnslu.

Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á ljóðlist og þýðingum. Engar kröfur eru gerðar um forþekkingu eða menntun.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Helstu hugtök og strauma í þýðingafræði.
  • Formbyltingu nútímaljóðsins.
  • Áskoranir og mismunandi lausnir þýðingarstarfsins.

Ávinningur þinn:

  • Þekking á áherslum og hugtökum þýðingafræðinnar.
  • Þjálfun í greiningu ólíkra leiða við þýðingar á nútímaljóðum.
  • Verkleg reynsla af ljóðaþýðingum.