Magnús Sigurðsson
About
Magnús Sigurðsson er rithöfundur og þýðandi og lauk doktorsprófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 2019. Fjallaði ritgerð hans um bandaríska ljóðskáldið Emily Dickinson. Hann hefur gefið út allnokkur þýðingasöfn, meðal annars á ljóðum Dickinson (Berhöfða líf, 2020) og norska skáldsins Tors Ulven (Steingerð vængjapör, 2012), auk ljóðaúrvalsins Að lesa ský (2018), með þýðingum á ljóðum bandarískra 20. aldar skálda.