Jazzhátíð Reykjavíkur í Hörpu
Norðurljós in Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Directions
Fri 28.08.2026 19:00
Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 25. – 30. ágúst 2026.
Boðið verður upp á glæsilega sex daga tónleikadagskrá þar sem jazz og spunatónlist verður í forgrunni og frábært listafólk frá Evrópu og Íslandi kemur fram.
Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar og veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika.
Kvöldpassi kostar 8.990 kr. en við bjóðum upp á afsláttarverð, 6.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 9.990 kr.
Föstudagurinn 28. ágúst – Harpa, Norðurljós
19:00 - Frelsissveitin & Davíð Þór Jónsson (IS)
20:00 - Look North (FR/UK)
21:00 - Tómas Jónsson / Magnús Trygvason Eliassen: Best á Flest (IS)
22:00 - María Magnúsdóttir – Tónleikar til heiðurs söngkonum Rómönsku Ameríku (IS)
Performers
-
The Liberation Orchestra of Iceland (IS)Um viðburðinn Athugið! Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar í Hörpu en hann veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Hörpu. Frelsissveitin var stofnuð árið 2010 af Hauki Gröndal og hefur starfað með hléum að ýmsum verkefnum. Hljómsveitin kom síðast fram á Jazzhátíð Reykjavíkur árið 2020 og flutti þá verkið “Four elements” eftir Hauk Gröndal. Upptaka af tónleikunum var sýnd á RÚV í mars 2022 en verkið og Frelsissveitin hlutu tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununm 2021. “Tónlistarhópur ársins” í jazz- og blúsflokki og “Tónverk ársins” í jazz- og blúsflokki. Að þessu sinni leikur finnski píanistinn Kari Ikonen með sveitinni en hann er einn þekktasti jazz- og spunapíanisti Finnlands enda framsækinn, ævintýragjarn virtúós. Á efnisskránni verða ný verk og útsetningar eftir Hauk Gröndal. M.a. verður frumflutt ný svíta sem ber titilinn “Aether”. Kari Ikonen : píanó Haukur Gröndal : saxófónar Snorri Sigurðarson : trompet Samúel J. Samúelsson : básúna Guðmundur Pétursson : gítar Pétur Grétarsson : slagverk Birgir Steinn Theódórsson : bassi Magnús Trygvason Elíassen : trommur Aðrir tónleikar á sama kvöldi: Marína Ósk kvartett (IS/SE) Jakob Bro / Óskar Guðjónsson / Skúli Sverrisson (DK/IS) Guitar Islancio og Unnur Birna -
María Magnúsdóttir
María Magnúsdóttir is a versatile jazz singer located in Reykjavík, Iceland.
-
Reykjavík JazzJazz festival
-
Tómas JónssonA newly formed jazz trio led by Tómas Jónsson, performing fresh original music composed by him. The music is funky and melodic, blending groove with lyrical sensibility.