Krókaleið um Julius Eastman - Seigla 2026
Norðurljós in Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Directions
Sat 08.08.2026 18:00
Elja kammersveit
Bandaríska tónskáldið Julius Eastman hefur vakið verðskuldaða athygli á undanförnum árum. Tilraunakennd og ögrandi tónlist hans byggir að miklu leyti á persónulegri upplifun hans af fordómum gegn svörtu og hinsegin fólki.
Flest verk hans eru skrifuð fyrir opna eða sveigjanlega hljóðfæraskipan, sem þýðir að nákvæm samsetning flytjenda og hljóðfæra getur breyst eftir því hverjir taka þátt í flutningnum. Í stað hefðbundinnar nótnaritunar, er tónlistin byggð á endurteknum mótífum sem umbreytast hægt í gegnum spuna. Þetta myndar marglaga form þar sem flytjendur flakka á milli hlutverka, endurtaka tónefni að vild og geta með þeim hætti mótað heildarbyggingu verksins í sameiningu á meðan flutningi stendur.
Á tónleikunum mun kammersveitin Elja einnig frumflytja nýtt verk eftir Pétur Eggertsson sem ber nafnið Krókaleið. Pétur, sem er undir miklum áhrifum frá tilraunakenndri tónlist Julius Eastman, vinnur í gegnum sjónlistir og gjörninga. Umbreyting hljóðs í gegnum handahófskenndar þýðingar í mismunandi miðla er í brennidepli í verkum hans, auk þess sem hlutverk áhorfenda er kannað og aukið.
Um verkið Krókaleið segir tónskáldið:
“Krókaleið er vistkerfi af hljóðum, fyrir kammersveit án stjórnanda. Verkið er innblásið af umhverfishljóðum frá skólalóð Mills College þar sem ég var í námi. Sterkir froskakórar birtust að hausti til, þar sem einn froskur myndi byrja að kalla og smám saman bættust fleiri við þar til hljóðið varð alltumlykjandi. Inn á milli heyrðist í flugum, fuglum, spjalli, hljóðfæraæfingum og fjarlægum umferðaniði. Þessi umhverfishljóð minntu óneitanlega á verk Pauline Oliveros sem setti sterkan svip sinn á skólann og starfaði þar fram til dauðadags, en verkið er að sama skapi innblásið af hlustunarverkum Oliveros.
Hlustun flytjenda er í brennidepli í verkinu, en þau eru bæði á eigin ferðalagi í gegnum skorið og að bregðast við ferðalögum hvers annars, svipað og dýr og aðrar lífverur í náttúrunni. Verkið verður þannig eins og innsýn í vistkerfi þar sem óbó og píanó ráða ríkjum, og áheyrendur verða vitni að samtali milli náttúruhljóða og hins manngerða þar sem froskar og fjarlægur ómur hljóðfæraæfinga takast á, fléttast saman og sameinast.
Verkið er liður í áframhaldandi rannsókn tónskáldsins á aðferðafræði í nótnaskrift sem gefur flytjandanum ákvarðanavald og inngripstækifæri innan tónefniviðsins. Nótnaskriftin er innblásin af borðspilum og slembiaðferðum bandarísku tilraunahefðarinnar, og er byggð upp af “tónefnareitum” sem flytjendur leiða sig í gegnum á þann hátt sem þau kjósa, en þó eftir settum reglum verksins.”
Efnisskrá:
J. Eastman: Joy Boy
P. Eggertsson: Krókaleið
J. Eastman: Stay On It
Flytjendur:
Elja, kammersveit
Stjórnandi: Hjörtur Páll Eggertsson
Elja samanstendur af ungu íslensku klassísku tónlistarfólki. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa stundað nám saman á Íslandi áður en haldið var erlendis, og starfa þau nú flest sem einleikarar eða hljómsveitarspilarar á Íslandi og víða um heim. Frá stofnun kammersveitarinnar árið 2017 hefur hún skipað sér í sess meðal fremstu kammersveita landsins og hefur vakið athygli fyrir líflegan og ferskan flutning. Elja hefur á þessum árum komið reglulega fram og stærstu tónleikarnir eru yfirleitt haldnir bæði á sumrin og um áramót ásamt smærri kammertónleikum á haust- og vorönn. Tónleikahúsnæðin hafa verið fjölbreytt og þar má nefna Hörpu, Gamla Bíó, Hof, Gömlu kartöflugeymslurnar, Iðnó, Tjarnarbíó og Miklagarð í Varmahlíð. Elja hefur hlotið mikið lof fyrir flutning sinn og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2019 sem flytjandi ársins (hópar) í flokknum Sígild og samtímatónlist. Einnig var Elja útnefnd listhópur Reykjavíkur árið 2026.
Spjall og drykkir með flytjendum
Að tónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli.
Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Hvort sem þú ert á leið á næstu tónleika kvöldsins eða vilt einfaldlega njóta augnabliksins, er þetta tilvalið tækifæri til að spjalla við listamennina, fá sér drykk og undirbúa sig fyrir næstu tónleika. Á barnum í Hörpuhorni verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.
Lengd: 75 mínútur, með hléi.
Almennt verð: 4.500kr
Verð fyrir nema, meðlimi Íslenska Schumannfélagsins og tekjulága: 2.500kr í miðasölu Hörpu.
–
Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.
Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.
Performers
-
Elja - Seigla festival
Chamber orchestra
-
Hjörtur Páll Eggertsson
Conductor
-
Pétur Eggerts
Choreographer leading a creative workshop
-
Seigla Festival's Final RecitalSeigla Festival is a classical music festival held in Harpa on the 5th-7th of August. Browse the festival programme on our website at: seiglafestival.com Seigla Festival’s final recital features music by American and Nordic composers, starting with Hallelujah Junction, a two piano piece by John Adams. The main characteristics are short rhythmic patterns that echo between the two instruments, and serve as an analogy for how traffic at a junction moves. The rhythmic patterns of the opening derive from the word „Hallelujah“, where the accent lands on the third syllable, through which one might hear the rhythm of the pianos say “llelujah, llelujah, llelujah…”. The two instrumentalists play the rhythms at a slight delay, creating a sense of planned resonance or echo. Hallelujah Junction is loosely structured into three contrasting movements whereas the music flows in gradual changes towards the final moments: a true onomatopoeic feast. Here, we get to hear the rhythmic pattern of the full four syllables in the word „Hallelujah“ as well as the „Junction“ being thrown rapturously between the two instruments. Despite the fact that the Nordic composers and contemporaries Edvard Grieg and Jean Sibelius never managed to actually meet in person, they respected one another’s music and even wrote letters stating their mutual admiration. Both were big admirers of the German Lied and wrote significant collections in the style. Six Songs, Op. 48, by Edvard Grieg are among his best known and beloved. After the intermission we will hear three short and romantic solo pieces by Jean Sibelius from his Ten Pieces for Piano, Op. 24. Sibelius’ larger-scale pieces are by far his best known, his symphonies and violin concerto, but he also wrote a considerable amount of incredibly beautiful lieder, chamber pieces and piano pieces which are seldom performed. Seigla Festival’s Final Recital concludes with Amy Beach’s songs for voice, violin, cello and piano. Beach was the first American woman to achieve widespread recognition as a composer. An incredible artist and pioneer, she wrote over 150 songs to poems both by herself and others, and often influenced by folk music. Performers: Hlín Pétursdóttir Behrens, soprano Vera Hjördís Matsdóttir, soprano Ólafur Freyr Birkisson, bass baritone Gunnhildur Daðadóttir, violinist Guðný Jónasdóttir, cellist Elisabeth Streichert, pianist Erna Vala Arnardóttir, pianist Pétur Ernir Svavarsson, pianist