Litla Seigla: Suð
Harpa | Hörpuhorn, Hörpuhorn, 101 Reykjavík Directions
Sat 08.08.2026 12:00
Suð er opið hljóðverk þar sem gestir skapa sjálfir lifandi hljóðverk með því að snerta, fikta í og spila á óvenjuleg Suð-hljóðfæri.
Hljóðin ferðast í gegnum Suð-hátalara sem magna þau upp, bjaga og umbreyta þeim á óútreiknanlegan hátt. Verkið þróast stöðugt eftir því sem fleiri taka þátt. Forvitni, tilraunir og sameiginleg sköpun eru í forgrunni, þar sem áhorfendur verða þátttakendur og tónlistin verður til í augnablikinu.
Um Stúdíó Suð:
Markús Bjarnason er hönnuður og listamaður með menntun frá Listaháskóla Íslands. Í verkum sínum sameinar hann hljóð, hönnun og myndlist þar sem áhersla er lögð á skynjun og upplifun rýmis. Markús og Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir stofnuðu saman Stúdíó Suð, listadrifna hönnunarstofu sem vinnur á mörkum hönnunar og listar með sérstaka áherslu á myndrænt- og hljóðrænt suð.
https://www.studiosud.is/
Áætluð lengd: 45 mínútur.
–
Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.
Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.