Litríkur myndheimur miðalda

Litríkur myndheimur miðalda

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Nov 17 2026 19:30

Hugsum við um miðaldir sem myrkar, gráar og einangraðar? Ný rannsókn sýnir allt aðra mynd – litríkt samfélag og sterk tengsl Íslands við umheiminn.

Hugtakið „hinar myrku miðaldir“ (e. Dark Ages) hefur lengi verið notað um fyrri hluta miðalda, einkum tímabilið frá 5. til 10. aldar eftir fall Vestur-Rómaveldis. Litið var svo á að eftir fall þess hefði orðið afturför í menningarlegri og vísindalegri framþróun. Núorðið er hugtakið „hinar myrku miðaldir“ almennt talið villandi og úrelt, enda sýna rannsóknir síðustu ára að miðaldir voru tímabil sköpunar og framþróunar. Þetta á ekki síst við um textíl- og handritagerð, gull- og silfursmíði og litríkar myndskreytingar bygginga og gripa.

Á þessu námskeiði verður fjallað um textíl- og handritagerð hérlendis á miðöldum og sjónum einkum beint að Þingeyraklaustri (1133–1551) og Kirkjubæjarklaustri (1186–1548). Klaustrin voru mikilvægar miðstöðvar textíl- og handritagerðar og tengdust víðfeðmu neti verslunar og menningarsamskipta utan Íslands. Efni námskeiðsins byggir á nýlegum rannsóknum þar sem beitt hefur verið háþróaðri röntgen- og litagreiningartækni (XRF og FORS) til að rannsaka litarefni í klæðum, handritum og kirkjugripum. Niðurstöðurnar sýna að mörg litarefni og hráefni voru innflutt og varpa nýju ljósi á tengsl Íslands við aðrar þjóðir á miðöldum. Fjallað verður um þessar rannsóknarniðurstöður og þá nýju sýn sem þær gefa á íslenskt miðaldasamfélag, þar sem litirnir verða leið til að skilja betur menningu, viðskipti og alþjóðleg tengsl þess tíma.

Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á miðaldasögu, myndmáli, textíl, handritum, klaustrum eða tengslum Íslands við umheiminn. Engar forkröfur eru gerðar.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Textíl- og handritagerð í Kirkjubæjarklaustri og Þingeyraklaustri.
  • Greiningu litarefna við vinnslu myndverks á miðöldum hérlendis.
  • Viðskipta- og menningartengsl Íslands við önnur samfélög Norður-Atlantshafsins á miðöldum.

Ávinningur þinn:

  • Innsýn í hvernig ný tækni getur varpað ljósi á miðaldagripi.
  • Þekking á viðskiptum og tengslum Íslands við umheiminn á miðöldum.
  • Innsýn í starfsemi og líf í íslenskum klaustrum á miðöldum.