Steinunn J. Kristjánsdóttir
About
Steinunn Kristjánsdóttir hefur starfað við Háskóla Íslands síðan í janúar 2006, fyrst sem lektor en sem prófessor í fornleifafræði frá 2012. Hún hefur sinnt fjölmörgum fornleifarannsóknum á undanförnum áratugum, t.d. á Skriðuklaustri í Fljótsdal, við kortlagningu klaustra á Íslandi og nú síðast á aftökum á Íslandi. Auk doktorsritgerðar frá 2004, hefur hún gefið út tvær bækur hjá Sögufélagi (Sagan af klaustrinu á Skriðu 2012 og Leitin að klaustrunum 2017), eina hjá Routledge (Monastic Iceland 2023) og loks Dauðadóminn á vegum Háskólaútgáfunnar 2024.